Youth Exchange Back to the Roots 2021-2022
Leiðin að rótunumVið tilkynnum með stolti að Húnaklúbburinn og Óríon hafa fengið Erasmus+ styrk vegna verkefnisins Leiðin að rótunum. Ungmennaráðin í Húnaþingi vestra og í Pyhtää í Finnlandi munu vinna saman að því að hvetja æskuna til aukinnar lýðræðisþátttöku, til að taka meiri þátt í að móta samfélög sín og búa ungmenni undir samskipti við stjórnvöld og aðra menningarheima í alþjóðlegu umhverfi. Æskulýðsleiðtogar frá Húnaþingi vestra og Pyhtää munu funda með innlendum og alþjóðlegum stefnumótendum auk heimamanna, til að kanna hvernig ungmenni sem búa í sveitarfélögum á landsbyggðinni geta haft forystu í samfélagsþróunarverkefnum sem hafa bein áhrif á líf þeirra. |
|